Í fjarveru trjáa. Vegaljóð
Ingunn Snædal

Í fjarveru trjáa - vegaljóð heitir ný ljóðabók eftir Ingunni Snædal. Bók hennar Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást kom út hjá Bjarti árið 2006, hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og heillaði bæði ljóðelska og þá sem ókunnari eru ljóðum. Hún hefur verið prentuð fimm sinnum.

Í ljóðabókinni Í fjarveru trjáa ferðast skáldið um landið vítt og breitt, sagt frá nýjum Flóabardaga, topptíu sólsetrum og bæjarnöfnum, hamingjublettum og vestfirskum ævintýrum.

Ingunn Snædal
er fædd á Egilsstöðum, uppalin á Jökuldal og hefur búið á Spáni, Írlandi, í Kostaríku, Danmörku, veturlangt á Aran-eyjum út af vesturströnd Írlands og til skamms tíma í Mexíkó. Ingunn leggur nú stund á meistaranámi í íslensku við Háskóla Íslands. Ingunn hefur áður sent frá sér ljóðabækurnar Á heitu malbiki árið 1995 og Guðlausir menn - hugleiðingar um jökulvatn og ást, 2006.

Síðasta ljóðið í bókinni Í fjarveru trjáa - vegaljóð heitir íslenskt landslag.


íslenskt landslag



að hálfu leyti himinn

hinn helmingurinn
minning

* * * * Fréttablaðið 

* * * * Morgunblaðið

"Ef lýsa ætti ljóðum Ingunnar Snædal í tveimur orðum væri líklega best að nota þessi tvö orð: Skemmtileg og heiðarleg," Hjalti Snær, Víðsjá 10. desember.

 

 

Bjartur, 2008

Prentun: Leturprent

Verð: 1690

Kápa: Ásta S. Guðbjartsdtóttir

Mynd á kápu: Guðný Rósa Ingimarsdóttir

Isbn:





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is