Maður og elgur
Erlend Loe

Þetta er grátbrosleg saga um fjölskylduföðurinn herra Doppler sem er gersamlega búinn að fá nóg af tilverunni og nóg af veseninu í fólki. Hann ákveður að snúa baki við samfélaginu og flytja út í skóg. Burt frá tilgangslausum vangaveltum um nýjar innréttingar, nýja stóla og burt frá endalausum skarkalanum úr sjónvarpi sonarins.

Hann ætlar að lifa af því sem hann finnur í skóginum og láta sér leiðast svo rosalega að hann verði glaður að nýju. Það er að minnsta kosti hugmyndin ...

Erlend Loe hjá Bjarti

"Ekkert veit ég betra en að lesa góðar bækur og nú hef ég nýlega lokið við þrjár. Þetta eru: Sandárbókin eftir Gyrði, Elías Mar: Nýr penni í nýju lýðveldi eftir Hjálmar Sveinsson og Maður og elgur eftir Erlend Loe (þýð. Hjalti Rögnvaldsson).

Allar gerðu þessar bækur tvennt í einu: a) Glöddu mitt gamla hjarta. b) Hreyfðu við því sem lúrir undir höfuðskelinni.

Maður og elgur kom mér mest á óvart."

Þórunn Hrefna, bloggíða


„Frábærlega frumleg og fyndin saga“ / Jyllands-Posten


"Skemmtilegasta bók sem ég hef lesið lengi" 
Michael Nilsen, Politiken

167 bls. Þýðandi: Hjalti Rögnvaldsson.

 

"Ekki verða of góður í öllu. Þú mátt alveg
þykjast heyra hvað mamma þín segir, en
gerðu þveröfugt. Ef þú gerir alltaf þver-
öfugt gengur þér vel. Lofaðu mér því.
Gerðu það sem þér sýnist, en forðastu að vera of góð-
ur.“
Þessu hvíslar herra Doppler í eyra nýfædds sonar
síns. Herra Doppler hefur fengið nóg af þjóðfélaginu
og flúið inn í skóg. Þar hefur hann dvalið einn í tæpt
ár og lifað mestmegnis á berjum
og keti af elg sem hann drap með
hnífi. Eini vinur hans er kálfurinn
sem fórnarlambið átti. Herra
Doppler og elgurinn lenda í ýms-
um ævintýrum. Og þeir spjalla
um alla heima og geima. Herra
Doppler hefur sterkar skoðanir á
mönnunum. „Allt mannlegt er
mér óviðkomandi,“ segir hann og
lýsir því yfir að fólk sé fávitar, allt
puðið til þess að geta eignast pen-
inga til þess að geta keypt meira af drasli til þess að
geta borgað fleiri reikninga til þess að geta puðað
meira og tuðað. Herra Doppler fyrirlítur mannfólk
og hversdagslega iðju þess, sjónvarpsglápið, kapp-
semina, metorðagirnina – að vera góður í einhverju,
það er sjúkdómur, segir herra Doppler.
Sagan um herra Doppler er eftir norska rithöfund-
inn Erlend Loe og heitir í íslenskri þýðingu Hjalta
Rögnvaldssonar Maður og elgur (Bjartur, 2007).


Upphaf þessarar sjálfskipuðu útlegðar er að herra
Doppler dettur af hjólinu sínu og fær högg á höfuðið.
Skömmu áður hafði faðir hans látist og svo virðist
sem andlát hans hafi haft mikil áhrif á herra Doppler.
Þegar hann hefur dvalist nokkra mánuði í skóginum
án þess að hafa neitt við að vera ákveður hann að
skera út mikla tótemsúlu til þess að heiðra minningu
föður síns.

Í fyrstu virðist herra Doppler hafa gengið af göfl-
unum við þessi áföll. En svo er ekki. Sagan er yf-
irveguð gagnrýni á það kapítalíska samfélag sem
herra Doppler ákveður að yfirgefa. Og hann gerir
það að yfirlögðu ráði. Hann neitar að taka þátt í því
skipulagi sem elur fyrst og fremst á inntakslausri eft-
irsókn eftir veraldlegum gæðum, á samkeppn-
ishæfni, á fyrirfram skilgreindum verðmætum. Hann
hefur tekið þátt í leiknum hingað til, verið eiginmaður
og faðir og sonur og launþegi og húseigandi og margt
fleira. Hann hefur verið góður. Hann hefur verið góð-
ur í mörgu. Nú vill hann hætta að vera góður en
gengur það misvel. Og smátt og smátt rennur upp
fyrir lesandanum að það er ekkert að herra Doppler.
Það er eitthvað að samfélaginu sem hann er sprottinn
úr. Þetta rennur einnig upp fyrir sumu fólki í kring-
um herra Doppler, meðal annars hægrimanninum
svokallaða.
Erlend Loe er írónískur og hittinn í þessari bók
sem óhætt er að mæla með..

ÞRÖSTUR HELGASON Lesbók Morgunblaðsins

Kaupa bók





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is