Sjón gekk til liðs við Bjart árið 2003 eftir langan og farsælan feril hjá Máli og menningu en rætur hans liggja þó miklu dýpra: Hann var í fararbroddi þess stórmerkilega hóps ungmenna sem stundaði nám við Fjölbrautarskólann í Breiðholti í kringum 1980, stofnaði súrrealistahópinn Medúsu og fékkst við allskonar tilraunir á sviði myndlistar, tónlistar og bókmennta.
Sjón var Bjarti mikill happafengur. Hann hóf ferill sinn á forlaginu með útgáfu á bókmenntaperlunni Skugga-Baldri sem var að sjálfsögðu tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og var að margra mati besta bók ársins 2003. Einnig var bókin Rökkurbýsnir tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2008. Fleiri meistaraverk eru í smíðum.
En Sjón hefur ekki síður reynst forlaginu öflugur liðsmaður á ýmsum öðrum sviðum. Hann leggst ódeigur á árarnar þegar þörf er og hefur meðal margs annars sýnt Bjartsvefnum mikinn áhuga og hollustu. þegar nýr vefur var opnaður vorið 2004 tók Sjón að sér að hanna útlit vefjarins og fórst það frábærlega vel úr hendi, eins og sjá má.
Verk útgefin hjá Bjarti
Nánari upplýsingar