
Ingunn Snćdal er fćdd á Egilsstöđum, uppalin á Jökuldal og hefur búiđ á Spáni, Írlandi, í Kostaríku, Danmörku, veturlangt á Aran-eyjum út af vesturströnd Írlands og til skamms tíma í Mexíkó. Hún er menntuđ í sveitaskólum, á heimavist á Eiđum, fjölbraut í Ármúla, HÍ og Kennaraháskólanum, ţar sem hún var haldin námsleiđa sem ól á vínhneigđ hennar. Ađ námi loknu náđi hún gleđi sinni á ný og starfađi sem kennari, af hugsjón, í nokkur ár.
Auk ţess ađ kenna íslensku, ensku og dönsku hefur Ingunn veriđ landpóstur, ráđskona í vegagerđ, bensíntittur, hliđbjálfi, grúppía, rolluljósmóđir, skúringakona, eldabuska á leikskóla, starfsmađur á dönskum spítala, í írskum súpermarkađi, mexíkönskum tungumálaskóla, íslenskri rćkjuvinnslu og veriđ á síldarvertíđ.
Ingunn er alin upp í fimm systkina hópi og er miđbarniđ (sem útskýrir margt fyrir ţeim sem kunna hvar-í-systkina-röđinni-frćđi). Hún er ţó lítiđ gefin fyrir hópíţróttir. Ingunn er í meistaranámi í íslensku. Hljóđfrćđi er henni hugfólgin. Hún er ljóđskáld. Ingunn hefur áđur sent frá sér ljóđabókina Á heitu malbiki áriđ 1995.
Verk útgefin hjá Bjarti
Í fjarveru trjáa. Vegaljóđ (2008)
Guđlausir menn – hugleiđingar um jökulvatn og ást (2006)
komin til ađ vera, nóttin (2009)