Bjartur er í rífandi stuði, enda er ný þrenna á leiðinni, þrjár
afbragsgóðar bækur koma úr prentsmiðju í vikunni og verður dreift fyrir
helgi. Þess vegna langar Bjart að gefa gjafir! Nokkrir heppnir
neon-áskrifendur, valdir af handahófi af starfsfólki Plasthúðunar og
pökkunar, Skeifunni, fá fallegar gjafir með neon-bókinni GLÆPUM á morgun
og hinn daginn: Réttarríkið, eftir Þórodd Bjarnason myndlistarmann eða
Sjöund eftir Gunnar Hersvein; þetta eru flott umslög - en Umslög er
einmitt ný ritröð um menningu og mannlíf. Þá hefur viðburðadeildin
fengið það verkefni að velja nokkra feisbúkkvini af handahófi og senda
þeim að gjöf hina frábæru spennusögu Varúlfinn, eftir frönsku skvísuna
Fred Vargas ...