Sænskur krimmi selst fyrir metfé um allan heim - útsendari Bjarts á staðnum

"Det Fördolda" (sem útleggst "Falið" á íslensku), ný glæpasaga eftir Hans Rosenfeldt og Michael Hjorth -unga sænska höfunda sem áður hafa getið sér gott orð við sjónvarpsþáttaskrif - er að verða ein eftirsóttasta bók síðari ára á Norðurlöndunum. Útsendari Bjarts brást hratt við og hefur landað samningi í Stokkhólmi.
Útgáfurétturinn á Det Fördolda hefur verið seldur fyrir metfé í Evrópu á liðnum vikum. Bókin kemur út í Svíþjóð í september - hjá útgáfenda Stiegs Larsson - en tveimur mánuðum síðar hjá Bjarti. Það er sömuleiðis Millennium-þýðandinn Halla Kjartansdóttir sem enn situr yfir sænskum metsölukrimmum og þýðir bókina á íslensku. Á síðustu vikum hefur handritið farið einsog eldur í sinu um útgáfuheima og er þegar seldur á tólf tungumálum - fyrir metfé.
”Sá áhugi, ákefð og kraftur sem einkennt hefur uppboðin á útgáfuréttinum er ótrúlegur,” segir Linda Altrov Berg hjá umboðsskrifstofu Norstedts, sem sá um samninga við Gunni Vilborgu Guðjónsdóttur sölu- og innkaupastjóra. “Við vorum sannfærð um að erlendir útgefendur myndu sýna bókinni áhuga en viðbrögð þeirra hafa farið fram úr okkar björtustu vonum; menn eru á einu máli um að lesendur eigi eftir að halda mjög upp á aðalpersónu sögunnar, Sebastian Bergman.” Gunnur Vilborg lætur vel af samningaviðræðunum við sænsku umboðsskrifstofuna, og þá sérstaklega samstarfinu við Lindu.
Útgáfurétturinn hefur þegar verið seldur til Frakklands, Þýskalands, Hollands, Ítalíu, Noregs, Danmerkur, Brasilíu, Finnlands, Póllands, Grikklands og Kóreu - og svo auðvitað til Bjarts á Íslandi.

Enn standa yfir uppboð í fjölmörgum öðrum löndum, en útgefendur eru heillaðir og telja að þetta verði stóra norræna skáldsagan í ár. Aðalpersónan Sebastian Bergman þykir sérlega vel heppnuð og skemmtileg - pirrandi og heillandi í senn - Sebastian Bergman "hefur margar hliðar og mann langar að kynnast þeim öllum," er haft eftir virtum norrænum útgefanda.

Framhald bókarinnar er væntanlegt árið 2011.

Á myndinni en útsendari Bjarts í Stokkhólmi, Gunnur Vilborg Guðjónsdóttir sölu- og innkaupastjóri, einmitt fyrir utan BELLMANSGATAN 1, sem glöggir aðdáendur Millennium-trílógíunnar vita auðvitað að er heimili Mikaels Blómkvists, blaðamanns, í Stokkhólmi. Það er gula húsið.)





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is