Á hádegisverðarfundi í Berlín, höfuðborg Þýskalands, náðust í dag samningar við þýska útgafurisann Rowohlt, um útgáfu á Góða elskhuganum, eftir Steinunni Sigurðardóttur. Rowoholt er ein glæsilegasta útgáfa Þýskalands og gefur út höfunda á borð við Paul Auster og Philip Roth, José Saramago og Toni Morrison, og svo auðvitað Daniel Kehlmann, sem skrifaði hina bráðskemmtilegu bók Mæling heimsins, sem Bjartur gaf út fyrir tveimur árum.
Góði elskhuginn kom út síðasta haust, einmitt um það leyti sem Steinunn átti fjörutíu ára rithöfundaafmæli, og var því að vonum veglega fagnað. Steinunn var aðeins nítján ára þegar Sífellur, hennar fyrsta ljóðabók, kom út, árið 1969.
Góði elskhuginn er sjötta bókin sem útgáfurisinn Rowohlt gefur út í Þýskalandi. Síðast gáfu þeir út skáldsöguna Sólskinshest, sem hefur hlotið frábærar undirtektir og hefur Steinunn fylgt bókinni eftir með upplestrum um þvert og endilangt Þýskaland. Gagnrýnandi stórblaðsins Frankfurter Allgemeine Zeitung var staddur á fjölmennum upplestri í Berlín, heillaðist algerlega og lét hafa eftir sér: "Ég gæti hlustað á hana endalaust." Enda sagði í dómi þess virta blaðs: "Snilldarverk. Textinn er svo fagur að maður óskar að hann endi aldrei."
Sá ágæti gagnrýnandi er ekki einn um að heillast af Steinunni í þýskri þýðingu Colettu Burling. "Ótrúlega lokkandi bók," sagði Antje Deistler á WDR2, "einhver fallegasta og best skrifaða bók sem ég hef lesið." Og Sueddeutsche Zeitung kallaði Steinunni meistara íróníunnar, hvorki meira né minna. Útgáfurisinn Rowohlt ætlar að gefa Góða elskhugann út á næsta ári, þegar Ísland verður heiðursgestur bókamessunnar í Frankfurt