Nú um stundir játa sumir blákalt ýmislegt vafasamt á sig, til dćmis ađ ţá langi ađ slökkva á friđarsúlunni, sem mér finnst reyndar býsna góđ hugmynd. Ég er hins vegar lítiđ fyrir játningar, enda kona sem vill helst bjóđa af mér góđan ţokka og koma vel fyrir. Ég hef tekiđ eftir ţví ađ ef mađur játar á sig eitthvađ kontróversíellt, til dćmis ađ hugtök á borđ viđ bráđger og fjölgreind séu kjánaleg og fari í taugarnar á manni, ţá verđa sumir í kringum mann dálítiđ uppstökkir, og ekki síđur pirrast sumt fólk ef mađur segist ekki trúa nema mátulega á ráđgjöf sérfrćđinga viđ hverskonar persónulegum vandamálum. Svo hafa menn líka fussađ dálítiđ ţegar ég játa ađ mér finnist kjötfarsbollur ekkert svo slćmur matur. Ég hef líka nokkrum sinnum játađ ađ mér finnist Njála ekkert sérlega skemmtileg og ţađ hefur ekki mćlst vel fyrir í ákveđnum kređsum.
Nú ćtla ég hins vegar ađ játa ađ mig blóđlangar í almennilega umfjöllun um bókmenntir á íslensku. Nú hvá kannski einhverjir og nefna Kiljuna, Lesbókina og kannski eitthvađ annađ. Kiljan er ágćt fyrir sinn hatt, en hún er bara ekki hreinrćktađur bókmenntaţáttur ţótt ţar sé fjallađ um bćkur í bland viđ annađ, og dagblöđin sýnast mér ţessa dagana mest vera međ einhverjar ör-umfjallanir sem eru stundum eins og nettar fréttatilkynningar. Mér virđist bćrileg umfjöllun um tónlist, leiklist og myndlist í flestum fjölmiđlum, svo mađur tali nú ekki um íţróttasíbyljuna, en alls ekki nóg um bókmenntir. Ég fletti stundum Vikunni og ţar er oft fjallađ um bćkur, sem er auđvitađ frábćrt, svo er TMM auđvitađ til, en ţađ kemur sjaldan og er á frćđilegri nótum en margir (ţessir sem oft eru kallađir „almennir lesendur“) hafa áhuga á. Í Víđsjá og fleiri ţáttum á RÚV er líka fjallađ um bókmenntir í bland viđ annađ. Í tímaritinu Börnum og menningu er alltaf reynt ađ hafa veglegar umfjallanir um nýlegar og eldri barnabćkur, en ţađ er ekki hćgt ađ fjalla um margar í hverju blađi og Börn og menning kemur líka bara út vor og haust. Ég og vinkonur mínar höldum úti bókablogginu Druslubćkur og dođrantar (bokvit.blogspot.com) en viđ erum í vinnu og harki heima hjá okkur og útum allan bć og ţess vegna eru afköstin stopul og tilviljanakennd.
Mig langar í hreinrćktađ íslenskt bókmenntafréttabréf, eđa tímarit, sem kemur út nokkuđ oft. Ţar vćri fjallađ međ alţýđlegum hćtti um bókmenntir út frá víđu sjónarhorni. Auk umfjallana um nýlega útkomnar bćkur mćtti í blađinu lesa viđtöl viđ höfunda og umfjallanir um bókabloggsíđur, bókakápur og ýmislegt fleira sem bókmenntum tengist. Sem dćmi um ágćtistímarit í ţessum anda get ég nefnt sćnska tímaritiđ Vi läser (http://www.vilaser.se/).
Ţórdís Gísladóttir