Kalman og Himnaríki til Gallimard

Þau stórtíðini voru að berast hingað á höfuðstöðvarnar að Gallimard  
hafi ákveðið að kaupa nýjustu bók Jóns Kalmans Himnaríki og helvíti.
Útgáfan verður á næsta ári og hugsar stórfyrirtækið GALLIMARD þetta  
sem fyrsta skref þeirra að því marki að gera Jón Kalman að evrópskum  
stórhöfundi.

 Í bréfi Gallimard útgáfunnar segir svo í lauslegri þýðingu:

Það er mér mikil heiður, fyrirgefið  mikil, mikill  heiður, að geta loks sagt ykkur að við hjá Gallimard höfum ákveðið að kaupa þýðingarréttinn á bók Jóns Kalmans Stefanssonar, Himnaríki og helvíti.  Jon Kalman er höfundur sem á heima á útgáfulista okkar. Hann er frábær viðbót fyrir okkur, fyrirtæki sem getur státað af að hafa gefið út helstu risa heimsbókmenntanna. Nú er komið að Jóni Kalman Stefánssyni. Þegar við hjá Gallimard tökum höfund um borð  þá er það til að fara í langa og skemmtilega siglingu. Útgáfan okkar er eins og glæst listisnekkja. Við siglum ekki í höfn fyrr en við höfum látið alla lesandi borgara Frakklands og helst allan heiminn  vita að Jon Kalman er eitt af stærstu nöfnum evrópskra nútímabókmenntanna. 

 Nú eru jól í nánd og ég veit ekki hvort þið hafið tækifæri til að meta þessa bón okkar strax. En ég get sagt ykkur hjá Bjarti að ég vík ekki frá síma fyrr en ég veit hvort Jon Kalman verður Gallimard-höfundur eða ekki. Fyrr verð ég ekki rólegur. Ég bið ykkur að láta mig ekki þjást yfir jólahátíðina.

Ég óska ykkur að minnsta kosti gleðilegra jóla." 

 

 





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is