
Klaustur Vorrar frúar stendur afskekkt á spćnskri sléttu, umvafiđ furuskógi. Íbúarnir hafa sagt skiliđ viđ heimsins amstur og helgađ líf sitt Guđi, einsemd og ţögn. Sex nunnur lifa ţar vanaföstu og einföldu lífi. Allt breytist daginn sem ferđataska finnst á tröppum klaustursins.
Á töskuna hafa veriđ gerđ loftgöt af mikilli natni. Fundurinn hefur afdrifaríkari afleiđingar en nokkur hefđi getađ gert sér í hugarlund.
Meira ađ segja í afskekktu klaustri eru konurnar ekki óhultar fyrir áreiti heimsins – eđa fortíđinni.
“Örvćnting, grimmd, örlćti, hneyksli, grunsemdir og sjálfsvíg, allt í lifandi og leiftrandi stíl.” –Sunday Times
”Klaustriđ er kyrrlát, nánast ţögul, frásögn en um leiđ brennheitt, mannlegt drama ... Saga Karnezis er máttug og fumlaus.” –Times
Höfundurinn
Panos Karnezis fćddist í Grikklandi áriđ 1967. Hann flutti til Englands tuttugu og fimm ára ađ aldri, lćrđi ţar verkfrćđi og vann í iđnađi en bćtti síđar viđ sig gráđu í ritlist.
Fyrsta bók hans, Little Infamies (2002), er safn smásagna sem gerast allar í ónefndu ţorpi í Grikklandi. Fyrsta skáldsaga hans, The Maze (2004), gerist í Anatólíu áriđ 1922 og fyrir hana var hann tilnefndur til Whitbread-verđlaunanna. Ţriđja skáldsaga Karnezis var The Birthday Party (2007), en ţessi bók, Klaustriđ, er sú nýjasta og kemur út í Englandi á ţessu ári.
Panos Karnezis býr í London.
neon
Sex sinnum á ári koma út í neon-bókaflokknum skáldsögur sem hafa vakiđ sérstaka athygli í heimalandi sínu eđa um víđa veröld. Bćkurnar eru glćsilega ţýddar og sendar áskrifendum heim, glóđvolgar úr prentsmiđjunni.
Klúbbur ţessi hefur, ekki ađ ástćđulausu, veriđ kallađur besti bókaklúbbur í heimi.
Ţýđing: Árni Óskarsson
ISBN: 978-9979-657-95-8
Kápa: Flash Gordon
Prentun: Oddi, Reykjavík
Verđ: 2.480 krónur