Karlar sem hata konur - kilja
Stieg Larsson

KARLAR SEM HATA KONUR eftir Stieg Larsson er komin út í kilju. Bókin hefur farið sigurför um heiminn - m.a. setið á metsölulista NYT - og hefur kiljunnar verið beðið með mikilli eftirvætningu.

Blaðamaðurinn Mikael Blomkvist er dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir meiðyrði í garð viðskiptajöfursins Hans-Eriks Wennerström og ákveður í framhaldi af því að taka sér hlé frá störfum á tímaritinu Millennium.

Um sama leyti fær hann einkennilega upphringingu. Henrik Vanger, fyrrum forstjóri hinnar voldugu Vangersamsteypu, vill ráða Mikael til þess að skrifa sögu fjölskyldunnar. Fljótlega kemur í ljós að fjölskyldusagan er yfirskin: hið raunverulega verkefni er að komast að því hvað varð um unga frænku forstjórans, Harriet, sem hvarf sporlaust fjörutíu árum fyrr.

Mikael Blomkvist er tregur til, en tekur að sér verkefnið. Honum til aðstoðar er ung kona, Lisbeth Salander, mjóslegin, náfölu og tattúveruð, frábær rannsakandi og tölvuséní.

Karlar sem hata konur er fyrsta bókin af þremur um Mikael Blomkvist og Lisbeth Salander, en bækurnar hafa verið kallaðar Millenium-trílógían. Þetta eru feikivel skrifaðar spennusögur sem hafa slegið rækilega í gegn og setið efst á metsölulistum víða um heim. Halla Kjartansdóttir þýddi. 

Stieg Larsson (1954-2004) var blaðamaður. Hann starfaði í 20 ár fyrir sænsku fréttastofuna TT en árið 1995 stofnaði hann og ritstýrði upp frá því tímaritinu Expo. Hann stundaði rannsóknir á hægriöfgamönnum og nýnasistum, og var einn fremsti sérfræðingur heims í andlýðræðislegum hreyfingum, sem hann barðist ötullega gegn. Hann lést fyrir aldur fram áður en fyrsta bókin í Millenum trílógíunni kom út.

"Glæpasagnaheimurinn hefur aldrei fyrr þurft að hylla og syrgja í sömu andrá jafn hæfileikarikan höfund og Stieg Larsson."
Sunday Times "Þessi bók sætir miklum tíðindum."

"Stöff sem enginn áhugamaður um sakamála- og spennusögur ætti að láta fram hjá sér fara." Páll Baldvin, Fréttablaðið 6. nóvember.

"Það væri HRÆÐILEGT að missa af þessari bók!" Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan



"Gríðarlega vel skrifaðir og flottir krimmar." Páll Baldvin Baldvinsson, Kiljan

BÓK ÁRSINS - starfsfólk Waterstone's bókabúðanna





Bjartur bókaforlag         Bræðraborgarstíg 9. 101 Reykjavík         Sími: 414 14 50         bjartur@bjartur.is