
Feđgarnir Rino og Cristiano Zena búa í ítölskum smábć og bera höfuđiđ hátt ţrátt fyrir kröpp kjör og eilífan ótta viđ hin hrikalegu barnaverndaryfirvöld sem segja ađ Rino sé ofbeldisfullur og drykkfelldur. Dag einn býđst ţeim fegđum stórfenglegt tćkifćri til ađ breyta lífi sínu til hins betra: Vinir Rinos kynna fyrir ţeim einfalda áćtlun ţar sem hrađbanki og kraftmikill traktor koma viđ sögu.
En vegir Guđs eru órannsakanlegir, og ţegar hin örlagaríka nótt rennur upp geisar óveđur, áin flćđir yfir bakka sína og ţađ lítur út fyrir ađ allar bjartar vonir kafni í leđju. Inn í söguna blandast ung stúlka sem Cristiano hefur lengi elskađ í leyni.
Niccoló Ammaniti er fćddur í Róm áriđ 1966. Skáldsaga hans Ég er ekki hrćddur var alţjóđleg metsölubók og kom út í neon-bókaflokki Bjarts áriđ 2005. Höfundinum var líkt viđ Fellini og Dickens í The New York Times og dásamađur hćfileiki hans til ađ blanda saman gamni og alvöru.
Ţýđandi er Hjalti Snćr Ćgisson.
"Ofbođslega kraftmikil saga af skrítnum mönnum og undirmálsfólki ... dúndurfrásögn" Egill Helgason, Kiljan, 19. nóv
isbn: 978-9979-657-35-4.
verđ: 4,480
kápa: Flash Gordon
prentuđ í Finnlandi
Glitrandi sakleysisleg kápa bókarinnar gefur alranga mynd af ţví sem í henni leynist. Og titillinn. Ekkert er guđlegt viđ lestur Í hendi Guđs, nema ef vera skyldu nánast yfirnáttúrulegir hćfileikar höfundar til ađ misbjóđa lesandanum ítrekađ. Ţetta meina ég á besta mögulega hátt.
Myrkur og rigning gnćfa yfir drengnum Cristiano Zena sem býr hjá drykkfelldum og ofbeldisfullum föđur sínum, Rino Zena. Ţeir feđgar eru undir eftirliti félagsráđgjafa enda ćrin ástćđa til. Cristiano fyrirgefur föđur sínum hins vegar alla misbresti og ţráir ekkert heitar en ađ búa hjá honum ađ eilífu, ef frá er talin draumur piltsins um ađ sofa hjá tveimur kynţokkafyllstu skólasystrum sínum, báđum í einu.
Enga á Cristiano vinina og ţví eyđir hann helst tíma međ föđur sínum og tveimur vinum hans sem sömuleiđis eru úrhrök samfélagsins.
Koldimma óveđursnótt leggja mennirnir ţrír upp í leiđangur sem á ađ gera ţá alla ríka en svo virđist sem sjálfur Guđ leggi sitt á vogarskálarnar.
Í hendi Guđs er kröftug, harđsođin og sannarlega ekki fyrir viđkvćma. Persónurnar eru sérlega vel skapađar og heildarmynd bókarinnar mjög skýr. Frásögn Niccoló Ammanito streymir fram eins og stórfljót, brýtur sér leiđ ţar sem engin er fyrir og feykir fótunum undan lesandanum í leiđinni.
Ég ţarf ađ horfa langt aftur til ađ finna bók sem situr jafn fast eftir í huga mér og ţessi.
Í hendi Guđs er önnur skáldsaga Niccoló Ammanito sem kemur út á íslensku. Áriđ 2005 kom út í neon-klúbbi Bjarts bókin Ég er ekki hrćddur ţar sem drunginn sveif einnig yfir vötnum.
Erla Hlynsdóttir, DV, desember 2008